Ómun er myndgreiningartækni sem notast við hljóðbylgjur og endurvarp þeirra. Notast er við sérstakan ómhaus sem sendir hljóðbylgjur um líkamssvæði til að fá mynd í rauntíma af líkamsbyggingu. Ómskoðun er hættulaus og laus við óþægindi. Dæmigerð rannsókn með ómun tekur 10-20 mínútur. Á meðal algengra rannsókna með ómun má nefna rannsóknir af líffærum í kviðarholi (lifur gall og bris) auk rannsókna af æðum í útlimum og hálsi.
Í sumum tilfellum er nauðsynlegt að undirbúa sig fyrir rannsókn. Á það til dæmis við rannsókn af kviðarholi en þá er nauðsynlegt að einstaklingur fasti í amk 4 klukkustundir fyrir rannsókn. Við tímabókun eru alltaf veittar upplýsingar um hvort þörf sé á sérstökum undirbúningi.