Myndgreining Hjartaverndar var stofnuð í september 2017 fyrir myndgreiningu í þjónustu – og vísindaskyni. Fyrirtækið er að langmestu leyti í eigu Hjartaverndar sem er ekki rekin í hagnaðarskyni.
Myndgreining Hjartaverndar byggir á grunni myndgreiningar í Hjartavernd þar sem í tæplega tvo áratugi hefur farið fram myndgreining, aðallega í vísindaskyni fyrir rannsóknarstyrktarfé.
Tilgangur Myndgreiningar Hjartaverndar er að veita þjónustu, sinna vísindarannsóknum, greiningu og forvörnum í því skyni að auka skilning á sjúkdómum og bæta meðhöndlun þeirra með tæknilegum aðferðum.
Við erum stolt af starfsfólki okkar sem m.a. samanstendur af röntgenlæknum, hjartalæknum, geislafræðingum og móttökuriturum. Við leggjum áherslu á að bregðast hratt við þjónustubeiðnum og sendum rannsóknarsvör venjulega innan 24 tíma frá rannsókn. Okkar sameiginlega markmið er að veita áreiðanlega þjónustu, sýna lipurð í samskiptum og alúðlegt viðmót.
Myndgreining Hjartaverndar (MH) leggur mikla áherslu á persónuvernd í starfsemi sinni og að uppfylla nýjar viðbætur sem gerðar voru á persónuverndarlögum árið 2018. Persónuvernd er mikilvæg í allri starfsemi MH og felur m.a. í sér að starfsmenn virða mannhelgi allra sem til fyrirtækisins leita eða þar starfa.
Skoða á korti