Læknir les í mynd af spjaldtölvu

Vísindastarf

Myndgreining Hjartaverndar byggir á tæplega tveggja áratuga grunni myndgreiningar í Hjartavernd sem aðallega hefur verið beitt í stórum hóprannsóknum í vísindaskyni sem hafa skilað mikilvægum niðurstöðum fyrir aukinn skilning á sjúkdómum.

Hafa samband

Myndgreining í þjónustuskyni

Markmið Hjartaverndar með stofnun dótturfélagsins, Myndgreiningar Hjartaverndar, er að reka myndgreiningu í þjónustuskyni með besta mögulega myndgreiningarbúnaði og nýta þá miklu reynslu sem hefur byggst upp við vísindarannsóknirnar og viðhalda þeirri þekkingu.Vísindamenn Hjartaverndar munu því áfram hafa aðgang að myndgreiningatækni í vísindarannsókna tilgangi í því skyni að auka skilning á sjúkdómum fyrir forvarnir og meðhöndlun.

Myndgreining í Hjartavernd hóf starfsemi sína í Holtasmára 1 árið 2002 við upphaf Öldrunarrannsóknarinnar. Áður gerði Hjartavernd myndgreiningu af lungum í eldra húsnæði að Lágmúla í Reykjavík í tengslum við Reykjarvíkurrannsóknina. Myndgreiningin í Holtasmára var fyrsta filmulausa myndgreiningardeild landsins og öll myndataka og myndúrvinnsla því stafræn. Meginstarfsemi, bæði myndataka og myndúrvinnsla var helguð vísindarannsóknum, stórum faraldsfræðirannsóknum og erfðarannsóknum. Þannig hefur myndgreining gegnt mikilvægu hlutverk í Öldrunarrannsókninni (AGES), Áhættuþátttakönnuninni (REFINE) og Afkomendarannsókninni (OFFGEN) þar sem myndir hafa verið teknar af öllum meginlíffærakerfum, þ.m.t. heila- og taugakerfi, stoðkerfi ásamt hjarta- og æðakerfi. Úr þessum rannsóknum hefur Hjartavernd með samstarfsfélögum, bæði innlendum og erlendum, birt yfir 500 ritrýndar vísindagreinar. Þar af hafa yfir 150 vísindagreinar verið birtar þar sem myndgreining og úrvinnsla og túlkun myndanna verið  í aðalhlutverki. Rannsóknarstarfið heldur áfram og eru í hverjum mánuði birtur fjöldi vísindagreina í ritrýndum vísindatímaritum.

Landspítalinn, Háskóli Íslands & Háskólinn í Reykjavík

Árangursríkt samstarf

Öflugt vísindastarf Hjartaverndar og dótturfélaga á mikið að þakka frábæru samstarfi við starfsmenn og nemendur Landspítalans, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Fjöldi sérfræðinga og annarra starfsmanna þessara stofnana hafa haft beina aðkomu að flestum vísindarannsóknum í tengslum við myndgreiningu í Hjartavernd. Samstarfið hefur m.a. leitt til fjölda lokaverkefna á diplóma, meistara – og doktorsstigi t.d. í læknisfræði, verkfræði, geislafræði, líffræði, erfðafræði og næringarfræði. Markmið Myndgreiningar Hjartaverndar er að áfram verði náin samvinna við Landspítala og háskólasamfélagið um öflugt vísindastarf og framþróun.

  1. Útgefið efni

    Smellið á hlekkinn til að skoða útgefið efni

Staðsetning Hjartaverndar

Staðsetning

Holtasmári 1 201 Kópavogur, Ísland Kt: 591017-0980

Skoða á korti

Hafa samband við hjartavernd

Hafa samband

Opnunartímar hjartaverndar

Opnunartímar

  • Mán - Fös: 08:00 - 16:00
  • Helgar: Lokað
Holtasmári 1, 201 Kópavogur, Ísland
Ritarar: 535-1876, Röntgen- & hjartalæknar: 535-1879
Opnunartími í dag: 08:00 - 16:00
Fara efst á síðu