Undirbúningur fyrir rannsókn.
Það er venjulega engin sérstakur undirbúningur fyrir röntgenrannsóknir og ekki þarf að gefa skuggaefni. Geislafræðingur tekur á móti þér og framkvæmir rannsóknina. Áður en rannsókn fer fram getur verið að geislafræðingurinn biðji þig um að hafa fataskipti eða fjarlægja skartgripi. Í flestum tilfellum eru teknar fleiri en ein röntgenmynd til að fá góða heildarmynd af því líkamssvæði sem verið er að skoða. Að rannsókn lokinni er það röntgenlæknir sem að greinir myndirnar og sendir rannsóknarsvar til tilvísandi læknis og/eða heimilislæknis sé óskað eftir því.
Ekki er æskilegt að þungaðar konur fari í röntgenmyndatöku nema með samráði við lækni. Mikilvægt er að láta geislafræðing vita ef grunur er um þungun, áður en rannsókn fer fram.
Við röntgenmyndatöku er ávallt farið eftir ströngum reglum um geislavarnir einstaklinga og aðeins starfsmenn með sérstaka menntun, venjulega geislafræðingar, hafa leyfi til að framkvæma röntgenrannsókn. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi geislavarnir þá eru geislafræðingar okkar alltaf tilbúnir að svara þeim.